Umhverfisstofnun auglýsir landvarðarnámskeið í fjarnámi

Landvarðarnámskeið Umhverfisstofnunar verður haldið í febrúar 2021. Starfsmenn stofnunarinnar hafa endurskipulagt námskeiðið með það að markmiði að geta kennt það óháð aðstæðum í samfélaginu. Námskeiðið verður að þessu sinni kennt í fjarnámi og gefst heimamönnum og öðrum því kjörið tækifæri til að nýta sér kosti þess að geta sótt lærdómsrík námskeið með auðveldum hætti. 

Námskeiðið spannar 110 kennslustundir sem raðast niður á 4 vikur á tímabilinu 4. til  28. febrúar. Nemendur sem ljúka landvarðarnámskeiði ganga fyrir um landvarðastörf í þjóðgörðum og á öðrum friðlýstum svæðum.

Í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli starfa þrír einstaklingar allt árið um kring auk þess sem nokkrir landverðir eru ráðnir til tímabundinna starfa ár hvert, frá vori fram á haust.

Opnað verður fyrir umsóknir 4. janúar 2021. Hámarksfjöldi nemenda á landvarðarnámskeiði eru 32. Skráð er á námskeiðið eftir röð umsókna. Lágmarksfjöldi nemenda er 25 og fellur námskeiðið niður ef tilskilinn fjöldi næst ekki. Skráningafrestur er til 11. janúar 2021. Nánari uppplýsingar gefur Kristín Ósk Jónasdóttir í síma 591 2000 eða á netfanginu kristinosk@ust.is. Nánari upplýsingar á vef Umhverfisstofnunar. Mynd: Gummi landvörður glímir við spurningar fróðleiksfúsra ungmenna í hrauninu ofan við Sjóminjasafnið á Hellissandi.