Umsóknarfrestur um störf í vinnuskóla framlengdur til 23. maí

Snæfellsbær óskar eftir umsóknum um störf í skemmtilegri og lærdómsríkri sumarvinnu við vinnuskóla Snæfellsbæjar sumarið 2022.

Vinnuskólinn verður starfræktur frá 9. júní til 23. júlí.

Nemendur í 8. bekk starfa í fjórar vikur, frá 9. júní til 8. júlí.

Nemendur í 9. og 10. bekk starfa í sex vikur, frá 9. júní til 22. júlí.

Unglingar fæddir 2005 geta einnig sótt um í vinnuskólanum, og vinna þeir sama tímabil og nemendur í 9. og 10. bekk.

Daglegur vinnutími nemenda í 8. bekk er frá frá kl. 8:00 – 12:00.

Daglegur vinnutími nemenda í 9. og 10. bekk og hjá árgangi 2005 er frá kl. 8:00 – 16:35 með hádegismat nema á föstudögum, þegar unnið er til kl. 12:00.

Athugið: Nemendur í 10. bekk og árgangur 2005 þurfa að skila rafrænum persónuafslætti og greiða í lífeyrissjóð. Iðgjöld reiknast frá næstu mánaðarmótum eftir 16 ára afmælisdag.

Nemendur vinnuskóla mæta á eftirfarandi staði, fer eftir búsetu:
  • Ólafsvík – Áhaldahús Snæfellsbæjar
  • Hellissandur – rúta fer frá Grunnskólanum á Hellissandi
  • Rif – rúta fer frá strætóskýlinu efst í Háarifi
Reglur vinnuskólans eru einfaldar og skýrar:
  •  Mæta skal á réttum tíma á réttum stað.
  • Sýna skal flokkstjórum kurteisi.
  • Einelti er ekki liðið.
  • Notkun tóbaks er bönnuð. Reykingar, munntóbak, vape og önnur vímuefni.
  • Notkun farsíma er bönnuð enda er ekki tekin ábyrgð á þeim á vinnutíma.
  • Öll forföll þarf að tilkynna til verkstjóra.
  • Leggja þarf til allan vinnufatnað og galla en vinnuskóli leggur til öryggisvesti.
  • Ætlast er til að krakkar mæti með nesti. Ekki er leyft að yfirgefa vinnustað í pásum.
  • Klæðnaður skal hæfa veðri og eðli vinnunnar.
Vinnuskólinn er eingöngu ætlaður fyrir börn sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu eða eiga foreldri með lögheimili í sveitarfélaginu.

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 23. maí.

Umsóknareyðublað er hægt að nálgast í Ráðhúsi Snæfellsbæjar eða hér að neðan.

Umsækjendur eru beðnir að senda umsókn á byggingarfulltrui@snb.is eða skila henni í Ráðhús Snæfellsbæjar. Nánar: