Ungmennaþing Vesturlands haldið á Lýsuhóli 12. - 13. mars
03.03.2022 |
Fréttir
Dagana 12. - 13. mars 2022 fer fram ungmennaþing Vesturlands á Lýsuhóli.
Um er að ræða samstarfsverkefni sveitarfélaga á Vesturlandi, ungmennaráðs Vesturlands og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV).
Markmið með þinginu er að:
- fá ungt fólk af öllu Vesturlandi saman
- stuðla að uppbyggingu í þágu ungs fólks á öllu Vesturlandi
- skapa vettvang fyrir samtal ungmenna við frambjóðendur sveitarstjórnarkosninganna sem fara fram 14. maí nk.
- kynnast öðrum ungmennum, njóta og hafa gaman
Þátttakendur munu ræða stöðu ungmenna á Vesturlandi frá ýmsum hliðum auk þess sem boðið verður upp á kynningar sem tengjast málefnum ungs fólks og ungmennaráða.
Þingið er ætlað ungu fólki á aldrinum 14 - 25 ára. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 40 manns og er lágmarkfjöldi tryggður frá hverju sveitarfélagi. Þátttakendum yngri en 18 ára þarf að fylgja fullorðinn einstaklingur.
Þátttaka er gjaldfrjáls og innifalið í þátttöku er gisting, matur, vinnugögn og annað tilheyrandi. Ferðakostnaður er á höndum sveitarfélaganna sjálfra.
Skráningarfrestur er til og með 6. mars. Laufey Helga Árnadóttir, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, tekur á móti skráningu á netfanginu laufey@snb.is. Einnig er hægt að skrá sig beint á ungmennaþingið hér. Ef það vakna upp spurningar er einnig hægt að hafa samband við Ívar Orra Kristjánsson, starfsmann ungmennaráðs Vesturlands, á netfanginu ivar.orri@akraneskaupstadur.is.