Uppbyggingarsjóður Vesturlands auglýsir eftir umsóknum
09.07.2020 |
Fréttir
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi auglýsa eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Vesturlands.
Að þessu sinni verða veittir styrkir til atvinnuþróunar- og nýsköpunar. Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2020.
Á vef SSV er rafræn umsóknargátt. Þar má einnig finna nánari upplýsingar, reglur og viðmið varðandi styrkveitingar.