Uppbyggingarsjóður Vesturlands auglýsir eftir umsóknum

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands - Úthlutun í janúar 2022 Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands.

Að þessu sinni verða veittir styrkir til eftirfarandi verkefna:

  • Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar
  • Verkefnastyrkir til menningarmála
  • Stofn- og rekstrarstyrkir til menningarmála
Frestur til að skila inn umsóknum er til og með 17. nóvember 2021.

Aðstoð við umsóknir:

Atvinnu- og nýsköpunarverkefni: Ólafur Sveinsson olisv@ssv.is 892-3208 Ólöf Guðmundsdóttir olof@ssv.is 898-0247 Helga Guðjónsdóttir helga@ssv.is 895-6707 Menningarverkefni: Sigursteinn Sigurðsson sigursteinn@ssv.is  698-8503 Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi er rafræn umsóknargátt. Þar má einnig finna nánari upplýsingar, reglur og viðmið varðandi styrkveitingar.