Uppbyggingarsjóður Vesturlands opinn fyrir umsóknum
07.11.2022 |
Fréttir
Nú er opið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands.
Umsóknarfrestur til 17. nóvember. Úthlutun í janúar 2023.
Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands.
Í þessari úthlutun eru:
- Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar
- Verkefnastyrkir til menningarmála
- Stofn- og rekstrarstyrkir til menningarmála