Útvarpsstöðin K100 verður á Ólafsvíkurvöku

Útvarpsstöðin K100 verður í beinni útsendingu frá Ólafsvíkurvöku á föstudag.

Ásgeir Páll og Regína Ósk taka skemmtilegri leiðina heim og ætla að heimsækja Ólafsvík og taka púlsinn á Ólafsvíkurvöku. Síðdegisþættinum frá kl. 16 – 18 verður útvarpað í beinni útsendingu frá Sker Restaurant. Auk þess verður fréttum frá sveitarfélaginu miðlað á öldum ljósvakans alla helgina og fjöldi viðmælenda úr samfélaginu líta við í létt spjall um lífið í Ólafsvík og gleðina á Ólafsvíkurvöku.

Íbúar eru hvattir til þess að fylgjast með K100 á samfélagsmiðlum og stilla á K100 í útvarpinu, sjónvarpinu eða einfaldlega á K100.is.