Verkföllum aflýst

Samninganefnd BSRB, fyrir hönd 14 aðildarfélaga, skrifaði rétt eftir miðnætti undir nýjan kjarasamning við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga með fyrirvara um samþykki félagsmanna.

Þetta þýðir að boðuðum verkföllum starfsfólks Snæfellsbæjar hefur verið aflýst. Verkföllin áttu að hefjast í nótt og standa í tvo sólarhringa.

Samningurinn nær til 7000 félagsmanna sem starfa hjá sveitarfélögum og gildir frá 1. apríl 2019 til 31. mars 2023.