Veruleg fjölgun Íslendinga á tjaldsvæðum
Íslendingum hefur fjölgað verulega á tjaldsvæðum Snæfellsbæjar það sem af er sumri. Í nýliðnum júnímánuði töldu Íslendingarnir sem dvöldu á tjaldsvæðunum 501 manns samanborið við 131 í sama mánuði í fyrra, eða rétt ríflega 380% fjölgun milli ára.
Heildargestum í júní fækkaði þó lítillega milli ára og skýrist það að hluta til vegna þess að útilegukortið er ekki í notkun á tjaldsvæðunum þetta árið. Hlutfall íslenskra gesta er þó töluvert hærra, 15% í ár samanborið við 3% í fyrra.
Þess má geta að tjaldsvæðin eru bæði á fallegum stöðum. Á Hellissandi er það í Sandahrauni, með útsýni yfir Snæfellsjökul og Krossavík, í næsta nágrenni við Þjóðgarðinn Snæfellsjökul. Í Ólafsvík er það staðsett neðst í fallegri hlíð við útjaðar bæjarins með gott útsýni yfir dalinn.
Á tjaldsvæðinum má finna eftirfarandi þjónustu:- Klósett (aðgengi fyrir fatlaða)
- Sturta (aðgengi fyrir fatlaða í Ólafsvík)
- Heitt og kalt vatn
- Eldunaraðstaða
- Vaskarými
- Úrgangslosun
- Rafmagn/rafmagnstenglar
- Internet
- Leikvellir
- Gönguleiðir