Vetrartónleikar menningarnefndar með GDRN og Magnúsi Jóhanni

Menningarnefnd Snæfellsbæjar heldur vetrartónleika á hlaupársdeginum 29. febrúar 2024 með GDRN og Magnúsi Jóhanni í Ólafsvíkurkirkju. Húsið opnar kl. 20:00 og hefjast tónleikar kl. 20:30.

Miðasala í Ráðhúsi Snæfellsbæjar á opnunartíma. Miðaverð kr. 3500. Miðar verða einnig seldir við hurð að degi tónleika.

-

Söngkonan GDRN og píanóleikarinn Magnús Jóhann hafa komið mikið fram sem tvíeyki frá því að þau gáfu út hljómplötuna Tíu íslensk sönglög árið 2022. Hún hefur að geyma tíu lög sungin af GDRN við meðleik Magnúsar í útsetningum tvíeykisins og hefur notið mikilla vinsælda. Á efnisskrá plötunnar er fjöldi íslenskra tónlistarperlna á borð við Rósin, Hvert örstutt spor, Vikivaki og eitt frumsamið lag, Morgunsól. Á tónleikum þeirra hyggjast þau flytja lög plötunnar í bland við aðrar tónlistarperlur sem og lög GDRN.

Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN, hefur látið mikið á sér kræla í íslensku tónlistarlífi frá því að hún gaf út sína fyrstu breiðskífu, Hvað ef, árið 2018. Sú hljómplata hlaut fjölda tónlistarverðlauna, tilnefningu til tónlistarverðlauna norðurlanda og mikla athygli. Síðan þá hefur hún sent frá sér fjölda laga í samstarfi við aðra listamenn sem og aðra breiðskífu, GDRN, árið 2020. Seinni breiðskífu sína vann hún m.a í samstarfi við Magnús Jóhann en leiðir þeirra lágu saman í tónlistarskóla FÍH nokkrum árum áður.

Magnús Jóhann hefur verið mjög virkur í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár sem píanóleikari, upptökustjóri, tónskáld og ýmislegt fleira fyrir fjölda listamanna. Sömuleiðis hefur hann gefið út fjórar sólóplötur, eina stuttskífu og dúóplötu ásamt Skúla Sverrissyni, bassaleikara. Hann var valinn tónlistarflytjandi ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2023.