Vetrartónleikum menningarnefndar með Valdimar aflýst vegna veikinda

Tilkynning til allra sem höfðu keypt miða á vetrartónleika menningarnefndar með Valdimar í Ólafsvíkurkirkju í kvöld.

Vegna veikinda í hljómsveitinni neyðumst við til að aflýsa tónleikunum. Allir sem hafa keypt miða fá tölvupóst frá tix.is varðandi endurgreiðslu.