Viðvera atvinnuráðgjafa
06.04.2020 |
Fréttir, Covid-19
Viðvera atvinnuráðgjafa Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi taka mið af aðstæðum í samfélaginu og fara nú eingöngu fram í gegnum síma eða fjarfundarbúnaðinn Zoom. Um tímabundna ráðstöfun er að ræða.
Atvinnuráðgjafi hér í Snæfellsbæ verður því ekki með viðveru í ráðhúsi Snæfellsbæjar 7. apríl og 5. maí 2020 eins og skipulag gerði ráð fyrir.
Ráðgjafar SSV fylgjast grannt með framvindu mála á þessum óvissutímum og geta aðstoðað, veitt ráðgjöf og miðlað upplýsingum til fyrirtækja og rekstraraðila á Vesturlandi.
Hægt er að hringja í atvinnuráðgjafa hér í síma 895-6707 og bóka fjarfund eða ræða málin símleiðis.
Atvinnuráðgjafi SSV í Snæfellsbæ:Helga Guðjónsdóttir
Atvinnuráðgjafi
Sími: 895-6707
Netfang: helga@ssv.is Nánar má lesa um hlutverk atvinnuráðgjafa á vefsíðu SSV.