Viðvera atvinnuráðgjafa og menningarfulltrúa í Röstinni 8. febrúar

Uppfært: Auglýstri viðveru ráðgjafa hefur verið frestað vegna slæmrar veðurspár. Nýr tími hefur verið ákveðinn mánudaginn 21. febrúar frá kl. 16:00 - 18:00.

-

Helga Guðjónsdóttir, atvinnuráðgjafi SSV, og Sigursteinn Sigurðsson, menningarráðgjafi SSV, verða í Röstinni þriðjudaginn 8. febrúar frá kl. 16:00 – 18:00. Verkefni atvinnuráðgjafa:

Atvinnuráðgjafi er einstaklingum, fyrirtækjum og sveitarstjórnum til aðstoðar á sviði atvinnumála. M.a. er veitt:

  • aðstoð við að greina vandamál
  • leiðbeiningar um hvar er hægt að fá aðstoð, bæði fjárhagslega og tæknilega frá stoðkerfum atvinnulífsins
  • aðstoð við gerð umsókna til sjóða
  • aðstoð við gerð rekstraráætlana
  • aðstoð við markaðsmál
Verkefni menningarfulltrúa: Menningarfulltrúi vinnur að ýmsum samstarfsverkefnum og ráðgjöf varðandi menningarmál. Menningarfulltrúi starfar með uppbyggingarsjóðnum og veitir umsækjendum um menningarstyrki upplýsingar og ráðgjöf. Menningarfulltrúi vinnur einnig með fagráði menningarmála að tillögu um úthlutun menningarstyrkja úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands og heldur utan um samskipti við styrkþega sjóðsins. Mörg mjög áhugaverð og fjölbreytt verkefni hafa hlotið menningarstyrki, auk þess sem veittir hafa verið styrkir til stofnana og fyrirtækja sem vinna að menningarmálum.