Viðvera menningarfulltrúa SSV í Röstinni 7. nóvember
04.11.2024 |
Fréttir
Menningarfulltrúi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi verður með viðveru í Röstinni á Hellissandi fimmtudaginn 7. nóvember frá kl. 10:00 - 15:00.
Hægt er að fá ráðgjöf um menningarverkefni af ýmsu tagi hjá SSV. Ráðgjöf felst í upplýsingum um styrki og sjóði, áætlanagerð og framkvæmd á listviðburðum.
Tímabókanir og fyrirspurnir skal senda með tölvupósti á sigursteinn@ssv.is og hægt er að bóka tíma utan auglýsts viðtalstíma.
Minnt er á að umsóknarfrestur Uppbyggingarsjóðs Vesturlands er 20. nóvember næstkomandi.