Viltu taka þátt í að fagna 30 ára afmæli Snæfellsbæjar?

Snæfellsbær verður 30. ára 11. júní 2024.

Snæfellsbær fagnar þessum áfanga með afmælisviku sem hefst 11. júní og lýkur á þjóðhátíðardegi Íslands 17. júní.

Unnið er að dagskrá afmælisvikunnar og hvetjum við fyrirtæki, íbúa og félagasamtök sem vilja taka þátt í afmælisvikunni með einhverjum hætti að hafa samband við Kristfríði Rós Stefánsdóttur, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, fyrir frekari upplýsingar. Netfangið hjá henni er kristfridur@snb.is.