Vitaverðir óskast í sumar
06.06.2018 |
Fréttir
Hollvinasamtök Þórðar Halldórssonar frá Dagverðará og Svæðisgarðurinn Snæfellsnes óska eftir sjálfboðaliðum til að taka að sér sýningar- og vitavörslu í Malarrifsvita undir Jökli. Í sumar mun listakonan Jónína Guðnadóttir verða með myndlistarsýningu í Malarrifsvita. Jónína hélt sambærilega sýningu í Akranesvita fyrir tveimur árum og fékk mikla athygli og aðsókn.
Sýningin opnar 29. júní n.k. og stendur til og með 2. september. Opið verður daglega frá 12:00 til 16:30. Á þessum tíma þarf einhver að vera til staðar í vitanum, taka á móti gestum og gæta vitans.
Skráningu vitavarða annast Ragnhildur Sigurðardóttir og Ragnhildur Víglundsdóttir.
Netföng þeirra:
Ragnhildur Sigurðardóttir - ragnhildur@snaefellsnes.is Ragnhildur Víglundsdóttir - ragvig@simnet.is