Vorhreinsun í Snæfellsbæ frá 14. maí til 2. júní
Tökum höndum saman og fegrum bæinn okkar. Flestum okkar líður betur í snyrtilegu umhverfi og nú er góður tími til að hreinsa nærumhverfið og eigin lóðir.
Gámar fyrir garðúrgang ásamt gámum með mold verða settir upp á eftirtöldum stöðum:
Ólafsvík við Grundarbraut 38 - 42 Rifi á túni við Háarif 37 Hellissandi við félagsheimilið RöstMolta verður í boði hjá Terra umhverfisþjónustu. Úrgangi skal skilað á starfsstöð Terra sem er opin þriðjudaga og fimmtudaga milli 15:00 - 18:00 og laugardaga kl. 11:00 - 15:00.
Rusl úr görðum og nærumhverfi sem sett hefur verið í ruslapoka við lóðarmörk verður hirt af starfsmönnum áhaldahúss þriðjudaginn 2. júní. Ganga þarf vel frá úrganginum í lokaða poka og binda smærri trjágreinar saman í knippi. Poka með úrgangi og greinaknippi skal setja við lóðarmörk og ganga þannig frá að auðvelt sé að nálgast til að fjarlægja en jafnframt að umferð um gangstéttir teppist ekki.