Vorhreinsun í Snæfellsbæ frá 21. maí - 7. júní

Frétt uppfærð 3. júní.

Ákveðið hefur verið að lengja tímabil vorhreinsunar fram yfir helgi. Vorhreinsun stendur því yfir til mánudagsins 7. júní í stað föstudagsins 4. júní.

Jafnframt hefur verið ákveðið að gámar verði sóttir eftir helgi og því geta íbúar nýtt helgina til að vinna í garðinum og losa sig við garðúrgang.

Rusl úr görðum og nærumhverfi sem sett hefur verið í ruslapoka við lóðarmörk verður jafnframt hirt af starfsmönnum áhaldahúss föstudaginn 4. júní. Rusl þarf að vera við lóðarmörk fyrir hádegi föstudaginn 4. júní svo það verði hirt.

--

Vorhreinsun verður í Snæfellsbæ frá 21. maí til 4. júní

Tökum höndum saman og fegrum bæinn okkar. Flestum okkar líður betur í snyrtilegu umhverfi og nú er góður tími til að hreinsa nærumhverfið og eigin lóðir. 

Gámar fyrir garðúrgang ásamt gámum með mold verða settir upp á eftirtöldum stöðum:

Ólafsvík við Grundarbraut 38 – 42 Rifi á túni við Háarif 37 Hellissandi við félagsheimilið Röst

Molta verður því miður ekki í boði hjá Terra umhverfisþjónustu þá daga sem vorhreinsun stendur yfir. Hún verður í boði hjá Terra síðar í sumar og verður auglýst sérstaklega þegar þar að kemur. Úrgangi skal skilað á starfsstöð Terra sem er opin þriðjudaga og fimmtudaga milli 15:00 – 18:00 og laugardaga kl. 11:00 – 15:00.

Rusl úr görðum og nærumhverfi sem sett hefur verið í ruslapoka við lóðarmörk verður hirt af starfsmönnum áhaldahúss föstudaginn 4. júní. Ganga þarf vel frá úrganginum í lokaða poka og binda smærri trjágreinar saman í knippi. Poka með úrgangi og greinaknippi skal setja við lóðarmörk og ganga þannig frá að auðvelt sé að nálgast til að fjarlægja en jafnframt að umferð um gangstéttir teppist ekki.

Athugið: Það þarf að vera búið að setja rusl við lóðarmörk fyrir hádegi föstudaginn 4. júní til að það verði hirt af starfsmönnum áhaldahússins.