Álagning fasteignagjalda fyrir árið 2023

Álagningu fasteignagjalda 2023 er nú lokið í Snæfellsbæ og er gjaldskrá aðgengileg neðst á upplýsingasíðu um fasteignagjöld hér á vefsíðu Snæfellsbæjar. Álagningarseðlar verða sem fyrr ekki sendir út á pappírsformi, en má nálgast rafrænt á island.is. Greiðsluseðlar verða heldur ekki sendir út á pappírsformi nema þess sé sérlega óskað. Greiðsluseðlar eru aðgengilegir rafrænt undir „rafræn skjöl“ í heimabönkum einstaklinga og fyrirtækja.

Gjalddagar fasteignagjalda eru átta, frá 1. febrúar til 1. september 2023. Ef fasteignagjöld eru gerð upp að fullu fyrir 15. mars 2023 fæst 3% staðgreiðsluafsláttur.

Hægt er að greiða fasteignagjöld með boðgreiðslum. Sé þess óskað, vinsamlegast hafið samband við bæjarritara sem fyrst.

Lækkun fasteignaskatts á íbúðum elli- og örorkulífeyrisþega er reiknuð við álagningu fasteignagjalda. Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali. Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt. Ef óskað er eftir að fá álagningar- og greiðsluseðla senda, eða vakni fyrirspurnir, má hafa samband við Lilju Ólafardóttir, bæjarritara, á netfanginu lilja@snb.is eða hringja í 433 6900. Ítarefni: