Breyting aðalskipulags Snæfellsbæjar 2015 - 2031, land Melabúðar I og hluti lands Gíslabæjar

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 11. janúar 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Snæfellsbæjar 2015 - 2031 dags. 23. nóvember 2021 ásamt umhverfismatsskýrslu, samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Aðdragandi breytingar er áhugi á heils árs búsetu að Melabúð 1, þar sem svæði fyrir frístundabyggð er breytt í íbúðarbyggð og að auka ferðaþjónustu á jörðinni Gíslabæ, þar sem svæði fyrir verslun og þjónustu VÞ-6 verði stækkað og svæði fyrir íbúðarbyggð minnkað. Svæði fyrir verslun og þjónustu var áður aðeins neðan vegar en verður eftir breytingu ofan og neðan Akravegar. Breyting verður á aðalskipulagsuppdrætti rammahluta aðalskipulags á Hellnum og greinargerð.

Tillagan er aðgengileg hér að neðan og mun sömuleiðis liggja frammi í Ráðhúsi Snæfellsbæjar, Klettsbúð 4, á opnunartíma frá 20. janúar til 10. mars. Tillaga að breytingu aðalskipulags ásamt umhverfismatsskýrslu verður jafnframt til kynningar hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7, Reykjavík. Bæjarstjórn samþykkti einnig auglýsingu um nýtt deiliskipulag vegna ferðaþjónustu á hluta lands Gíslabæjar á fundi sínum þann 11. janúar 2022 og er hún aðgengileg hér að neðan.

Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast til skipulags- og byggingarfulltrúa Snæfellsbæjar í síðasta lagi fimmtudaginn 10. mars 2022 í Ráðhús Snæfellsbæjar að Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ eða á byggingarfulltrui@snb.is. Viðhengi: