Breytt deiliskipulag að Arnarfelli á Arnarstapa
11.04.2019 |
Fréttir, Skipulagsmál
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkti 11. apríl 2019 að endurauglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi ferðaþjónustunnar við Arnarfell á Arnarstapa skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan felur í sér breytingu á lóð Arnarfells og aðkomu frá suðri. Breytingin hefur í för með sér breytingu skipulagsskilmála og byggingarskilmála og er því eldra deiliskipulag fellt úr gildi með gildistöku þessa deiliskipulags.
Helstu breytingar:- Áður var gert ráð fyrir 11 smáhýsum, en nú er gert ráð fyrir að þau verði allt að 13.
- Byggingarreitir og núverandi gistihús Arnarfells eru sameinuð í eina hótelbyggingu á tveimur hæðum.
- Byggingarreit fyrir þjónustuhús er breytt lítillega.
- Lögun á byggingarreit fyrir snyrtingu tjaldsvæðis er breytt, en fyrirhugað að reisa nýtt hús í stað núverandi húss.
- Umferðarskipulagi á lóðinni er breytt innan lóðar og sunnan hennar og bílastæði eru löguð að breyttri aðkomu að sunnan.