Dagskrá heilsudaga Snæfellsbæjar 2022
22.09.2022 |
Fréttir
Snæfellsbær gerir heilsu hátt undir höfði dagana 23. - 30. september og heldur heilsudaga Snæfellsbæjar í sjötta skipti og annað skipti sem hluta af ÍSÍ íþróttaviku Evrópu.
Á heilsudögum er lögð áhersla á að bjóða íbúum upp á heilsutengda viðburði og kynningar sem henta öllum aldri. Fyrst og fremst er þetta kynning á þeim heilsutengdu viðburðum sem eru nú þegar í boði í Snæfellsbæ og ættu flestir að geta fundið viðburð sem vekur áhuga.
Íbúar eru hvattir til að mæta á viðburði, skella sér í sund, stunda útivist eða aðra hreyfingu og anda að sér fersku lofti í okkar fallega sveitarfélagi.
Frítt er á fyrirlestra.
Opna dagskrá í góðum gæðum