Hafnarsjóður Snæfellsbæjar auglýsir laust starf á skrifstofu
24.03.2020 |
Fréttir
Hafnarsjóður Snæfellsbæjar auglýsir 50% starf á hafnarskrifstofu laust til umsóknar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Starfssvið:- Almenn skrifstofuvinna
- Færsla bókhalds
- Gerð reikninga
- Skýrslugerðir
- Undirbúningur funda
- Önnur tilfallandi störf
- Stúdentspróf er kostur
- Góð færni í Excel og almenn tölvufærni er æskileg
- Þekking og reynsla af Navision er kostur
- Sjálfstæð vinnubrögð, þjónustulund og skipulagshæfni er skilyrði
Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu.
Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl 2020 og skal skila umsóknum til hafnarstjóra á netfangið bjorn@snb.is. Nánari upplýsingar gefur hafnarstjóri í síma 433-6922 og 863-1153, netfang bjorn@snb.is.