Heimsóknir leyfðar á Jaðar frá 4. maí með takmörkunum

Heimsóknir verða leyfðar inn á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar með ákveðnum takmörkunum frá og með 4. maí næstkomandi. Þó mikið hafi áunnist í baráttunni gegn COVID-19 erum við ekki komin í höfn og sýna þarf ítrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Einnig er nauðsynlegt að takmarka þann fjölda sem kemur inn í heimilið á hverjum tíma. Vonir eru bundnar við að heimsóknir verði rýmkaðar enn frekar í júní 2020.

Eftirfarandi heimsóknarreglur verða í gildi frá 4. maí. Aðstandendur eru beðnir að kynna þær sér vel.
  1. Ekki panta heimsóknartíma og alls ekki koma í heimsókn ef:
    • Þú ert í sóttkví.
    • Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.
    • Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
    • Þú ert með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
  2. Heimsóknartími er frá kl. 10:00 - 16:00 eða eftir samkomulagi.
  3. Hafið samband í síma 433 - 6932 og pantið heimsóknartíma. Til að byrja með einskorðast heimsóknir við eina heimsókn á viku. Ef vel gengur í baráttunni við veiruna, verður tíðni heimsókna aukin.
  4. Við hvetjum ykkur til að hlaða niður í símana ykkar smitrakningnarappi almannavarna Rakning C-19 fyrir 4. maí. Smella hér til að fræðast um appið og ná í það.
  5. Hinkrið eftir starfsmanni á tilgreindum inngöngustað. Starfsmaður fylgir ykkur til íbúa.  Munið að þvo og/eða spritta hendur áður en heimsókn hefst og að henni lokinni. Ekki koma við neitt í almannarýmum, farið beint inn til íbúa og beint út aftur.
  6. Athugið að heimsóknin er til ættingja þíns, staldrið ekki við til að ræða við aðra íbúa, ættingja eða starfsfólk.
  7. Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa eins og hægt er.

Aðrar breytingar sem verða frá 4. maí á starfsemi innan hjúkrunarheimila:

Hárgreiðsla og hársnyrting/fótaaðgerð og fótsnyrting: Er aðeins leyfð fyrir heimilismenn á hverjum tíma. Gæta þarf vel að aðskilnaði íbúa frá utanaðkomandi gestum. Almenna reglan er áfram að einstaklingar í sama sóttvarnahólfi fái þjónustu á sama tíma.

ATHUGIÐ: Ef smit vegna COVID-19 aukast aftur, eða smit vegna annarra smitsjúkdóma, munu tilslakanir á heimsóknarbanni ganga til baka og reglur verða hertar á ný.