Íbúafundur um sameiningartillögu og kynningarbæklingur
27.01.2022 |
Fréttir, Sameiningarviðræður
Rafrænn íbúafundur til kynningar á tillögu samstarfsnefndar um sameiningu Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar verður haldinn í kvöld, fimmtudaginn 27. janúar.
Fundurinn fer fram á fjarfundarkerfinu Zoom og stendur frá kl. 20:30 - 22:00.
Kynningarbæklingi vegna tillögunnar var dreift í öll hús í sveitarfélögunum tveimur með nýjasta tölublaði af bæjarblaðinu Jökli, en einnig er hægt að nálgast hann hér á síðunni.
Tengil inn á fundinn og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni snaefellingar.is. Ítarefni: