Sumarstörf og vinnuskóli Snæfellsbæjar 2021

Snæfellsbær hefur opnað fyrir umsóknir um skemmtileg og fræðandi sumarstörf fyrir ungmenni árið 2021.

Sumarstörf

6-8 leiðbeinendur/flokkstjóra í vinnuskólanum.

Um er að ræða 100% störf í þrjá mánuði frá 17. maí nk. Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri, vera færir um að stýra vinnuskólahópi, hafa reynslu og áhuga á að vinna með og fræða unglinga. Umsækjendur eru tóbakslausir, sjálfstæðir og góðar fyrirmyndir. Þekking á staðarháttum í sveitarfélaginu er einnig nauðsynleg.

8-10 starfsmenn í sumarvinnu.

Um er að ræða 100% starf í þrjá mánuði frá 17. maí nk. Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri, vera áhugasamir, duglegir, hafa áhuga á útivinnu, tóbakslausir, sjálfstæðir og hafa áhuga á útivinnu.

Umsóknarfrestur í ofangreind störf er til 25. apríl 2021. Ekki verður tekið við umsóknum að þeim tíma loknum.

Vinnuskóli

Vinnuskóli Snæfellsbæjar verður starfræktur frá 9. júní til 23. júlí 2021.

Nemendur í 8. bekk starfa í fjórar vikur, frá 9. júní til 9. júlí. Daglegur vinnutími frá frá kl. 8:00 – 12:00.

Nemendur í 9. og 10. bekk starfa í sex vikur, frá 9. júní til 23. júlí. Daglegur vinnutími frá kl. 8:00 – 16:35 með hádegismat nema á föstudögum þegar unnið er til kl. 12:00.

Unglingar fæddir 2004 geta einnig sótt um í vinnuskólanum, og vinna þeir sama tímabil og nemendur í 9. og 10. bekk.

Umsóknarfrestur í vinnuskóla rennur út 16. maí 2021. Ekki verður tekið við umsóknum að þeim tíma loknum. Nánari upplýsingar um tilhögun vinnuskóla. Ath: Vinnuskólinn er eingöngu ætlaður fyrir börn sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu eða eiga foreldri með lögheimili í sveitarfélaginu.

---

Umsóknareyðublöð um sumarstörf og vinnuskóla má nálgast hér að neðan og í Ráðhúsi Snæfellsbæjar.

Umsóknir berist á skrifstofu Snæfellsbæjar, Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ, eða á netfangið: byggingarfulltrui@snb.is.

Upplýsingar í síma: 433-6900.

Nánar: